|
|
||
![]() |
Paul Nabil lést hinn 19. ágúst 2006 eftir tólf ára baráttu við liðsarkmein (e. synovial sarcoma), 33 ára að aldri. Aðstandendur hans hafa komið á laggirnar vefsíðu þessari og styrktarsjóði til að minnast Nabils og styðja við málstaðinn sem var honum kær. Í sumar ætla vinir og vandamenn Nabils að fjölmenna til Íslands, heimalands móður hans, og hlaupa fyrir áheitum í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis. Öllum sem þekktu Nabil, tengjast málstaðnum eða vilja bara vera með er velkomið að slást í hópinn. Um Nabil Nabil lifði hverja stund, hvern dag og hvert ár af hjartans list. Það var einnig frá hjartarótum sem hann sótti óstöðvandi hugrekki til að koma sér i gegnum baráttuna við krabbamein. Hann tókst ítrekað á við erfiðar læknisaðgerðir og kom út úr hverri þeirra með meiri viljastyrk og kærleika en áður. Nabil elskaði vini sína sem virtu hann sem fyrirmynd og trúnaðarvin og hann elskaði fjölskyldu sína sem naut hlýju hans og kímnigáfu. Nabil elskaði það smáa í lífinu, allar fyndnu sögurnar og heillandi smáatriðin sem við varðveitum í hjörtum okkar; minningarnar sem við erum svo lánsöm að eiga því við vorum svo lánsöm að hafa kynnst Nabil.[...] |