English

Forsíða | Um Nabil | Málstaðurinn | Vera með
| Viðburðir | Hafðu samband

 

Hvernig get ég hjálpað?

Í fyrsta lagi geturðu látið okkur vita ef þú hefur áhuga á því að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis með okkur í ágúst 2007. Við leitum eftir staðfestingu sem flestra þátttakenda á næstu vikum auk þess sem við munum birta dagskrá yfir viðburði dagana fyrir og eftir hlaupið. Við munum birta fréttir hér á síðunni og senda þær með tölvupósti til þátttakenda.

Einnig geturðu sent okkur netfangið þitt og þeirra vandamanna þinna sem þú telur að hefðu áhuga á starfsemi styrktarsjóðsins. Það myndi vera okkur mikil aðstoð í uppbyggingu tengslanets sjóðsins.

Á meðan vinnslu síðunnar stendur viljum við biðja þig um að hafa samband við okkur á netfangið info@pnbustanyfund.org. Þakka þér fyrir að sýna áhuga á málstað sem er okkur mjög kær.