English

Forsíða | Um Nabil | Málstaðurinn | Vera með
| Viðburðir | Hafðu samband

   
   

Opnunarviðburður 2007

Á hverju ári munu aðstandendur styrktarsjóðsins skipuleggja viðburð til að minnast Nabils og styðja við baráttuna gegn liðsarkmeini. Í ár varð Reykjavíkurmaraþon Glitnis fyrir valinu sem besta leiðin til að minnast Nabils, safna fé og vekja athygli á málstaðnum. Við viljum ekki einungis safna peningum heldur fyrst og fremst koma saman til að minnast Nabils og fagna lífinu sem hann lifði. Hlaupið býður einnig upp á tækifæri til að safna öllum vinum Nabils saman og rækta tengslin. Það er vegna þessa sem við viljum að ÞÚ takir þátt!

Hvar og hvenær er hlaupið?

Maraþonið fer fram í miðborg Reykjavíkur 18. ágúst næstkomandi. Upplýsingar um hlaupið má nálgast á heimasíðu þess: http://www.marathon.is.

Hverjir geta tekið þátt?

Við hvetjum til þátttöku ALLRA sem hafa áhuga. Nabil hafði alltaf gaman af stórum mannfagnaði og hefði vissulega viljað sjá þátttöku allra vina sinna, ættingja og vina þeirra.

Verð ég að hlaupa heilt maraþon?

Nei, alls ekki. Þú getur gengið eða hlaupið hverja þá vegalengd sem þú kýst. Sumir ætla að hlaupa hálft maraþon á meðan aðrir ætla að hlaupa eða ganga styttri vegalengd. Hugmyndin er sú að taka þátt á hvern þann hátt sem þú getur best stutt malefni Nabils.

Hvernig söfnum við pening í sjóðinn?

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í Reykjavíkurhlaupinu 18. ágúst næstkomandi til stuðnings “Minningarsjóði Nabils” eru vinsamlegast beðnir um að leita til vina og vandamanna auk fyrirtækja um áheit vegna þátttöku sinnar. Hægt er að skrá sig í hlaupið á vefsíðu Glitnis: www.marathon.is og áheitin einnig á síðunni: www.marathon.is/pages/aheit/ . “Minningarsjóður Nabils” er þar á listanum yfir góðgerðarfélög.

“Minningarsjóður Nabils” er nafnið á bankareikningi sem hefur verið stofnaður hjá Glitni fyrir áheit Íslendinga en þeir peningar sem safnast munu renna í sjóð Paul Nabil Bustany Fund for Synovial Sarcoma Research sem er lögskráður í New Jersey, 2007. Sjóðurinn mun veita fé til vísindamanna sem vinna að rannsóknum á liðsarkmeini. Á síðastliðnu ári gáfu fjölskylda Nabils og vinir í Bandaríkjunum peningagjöf til Marc Ladanyi, MD, Ph.D sem er leiðtogi í rannsóknum á liðsarkmeini á Sloan Kettering Memorial Hospital í New York.