English

Forsíða | Um Nabil | Málstaðurinn | Vera með
| Viðburðir | Hafðu samband

 

Málstaðurinn

Tilgangur styrktarsjóðsins er að styðja við rannsóknir á liðsarkmeini (e. synovial sarcoma), ólæknandi tegund krabbameins sem herjar árlega á hundruðir ungs fólks á aldrinum 15 til 35 ára. Flest deyja innan nokkurra ára frá greiningu. Orsakir sjúkdómsins eru ókunnar.

Á því tólf ára tímabili sem Nabil barðist við liðsarkmein voru mjög takmarkaðar rannsóknir gerðar á sjúkdómnum og litlar framfarir urðu í meðferð hans. Í júní 2006 talaði Nabil við vísindamenn á Memorial Sloan Kettering Krabbameinsmiðstöðinni í New York um möguleikana á fjársöfnun til styrktar rannsóknum á liðsarkmeini. Þessir vísindamenn höfðu hlotið takmarkaðan styrk frá National Institute of Health (NIH) til að hefja rannsóknir á liðsarkmeini. Þar sem svo litlar rannsóknir hafa verið gerðar þá getur munað um hvert skref til að auka framfarir og bæta meðferð. Með þetta í huga lagði Nabil áherslu á mikilvægi þess að safna grunnfjármagni til að hvetja til aukinna rannsókna og aukins áhuga á liðsarkmeini – og gefa þeim von sem lifa með sjúkdómnum.

Því miður lifði Nabil ekki nógu lengi til að fylgja hugmyndum sínum eftir. Því hafa eiginkona hans, Asu Okyay, og fjölskylda hans stofnað sjóð í nafni hans, Minningarsjóð Nabils, sem tengist Paul Nabil Bustany Memorial Fund for Synovial Sarcoma Research. Sjóðurinn er lögskráður i New Jersey. Samkvæmt okkar bestu vitund þá er sjóðurinn eini einkarekni styrktarsjóðurinn fyrir rannsóknir á liðsarkmeini.